Íslensku jólasveinarnir
Leppalúði
Leppalúði er annar eða þriðji eiginmaður tröllkonunar Grýlu en ekki ber sögum saman um hve marga eiginmenn Grýla raunverulega átti þótt oftast séu þeir nefndir tveir. Leppalúði er ætlaður vera faðir allra jólasveinanna.
Leppalúði er óskaplegt letiblóð og þótt þjóðsögur segi af veiðum þeirra á mönnum og börnum saman er mjög oft einnig minnst á hann bíðandi eftir að Grýla færi honum mat í helli þeirra í fjöllunum.
Kemur til byggða
Er oftast eftir heima
Fer aftur heim
Er oftast eftir heima
Grýla hét tröllkerling
leið og ljót
með ferlega hönd
og haltan fót.
Í hömrunum bjó hún
og horfði yfir sveit,
var stundum mögur
og stundum feit.
Grýla hét tröllkerling
leið og ljót
með ferlega hönd
og haltan fót.
Í hömrunum bjó hún
og horfði yfir sveit,
var stundum mögur
og stundum feit.
Á börnunum valt það,
hvað Grýla átti gott,
og hvort hún fékk mat
í sinn poka og sinn pott.
Ef góð voru börnin
var Grýla svöng,
og raulaði ófagran
sultarsöng.
Ef slæm voru börnin
varð Grýla glöð,
og fálmaði í pokann sinn
fingrahröð.
Og skálmaði úr hamrinum
heldur gleið,
og óð inn í bæina
– beina leið.
Þar tók hún hin óþekku
angaskinn,
og potaði þeim
nið’r í pokann sinn.
Og heim til sín aftur
svo hélt hún fljótt,
– undir pottinum fuðraði
fram á nótt.
Um annað, sem gerðist þar,
enginn veit,
– en Grýla varð samstundis
södd og feit.
Hún hló, svo að nötraði
hamarinn,
og kyssti hann
Leppalúða sinn.
Svo var það eitt sinn
um einhver jól,
að börnin fengu
buxur og kjól.
Og þau voru öll
svo undurgóð,
að Grýla varð hrædd
og hissa stóð.
En við þetta lengi
lengi sat.
Í fjórtán daga
hún fékk ei mat.
Þá varð hún svo mikið
veslings hró,
að loksins í bólið
hún lagðist – og dó.
En Leppalúði
við bólið beið,
– og síðan fór hann
þá sömu leið.
Nú íslensku börnin
þess eins ég bið,
að þau láti ekki hjúin
lifna við.
Á börnunum valt það,
hvað Grýla átti gott,
og hvort hún fékk mat
í sinn poka og sinn pott.
Jóhannes úr Kötlum
Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum og fjölskyldu. Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Leppalúða. Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.
Frá Verkstæði Jólasveinanna
Íslensku jólasveinarnir
Hér að að neðan eru jólasveinarnir í þeirri röð sem þeir koma til byggða. Til að fá meiri upplýsingar þinn uppáhalds jólasvein og kannsi að fá frá honum gott í skóinn, bréf eða jafnvel pakka um jólin.
Stekkjastaur
Kemur: 12. desember
Fer heim: 25. desember
Giljagaur
Kemur: 13. desember
Fer heim: 26. desember
Stúfur
Kemur: 14. desember
Fer heim: 27. desember
Þvörusleikir
Kemur: 15. desember
Fer heim: 28. desember
Pottaskefill
Kemur: 16. desember
Fer heim: 29. desember
Askasleikir
Kemur: 17. desember
Fer heim: 30. desember
Hurðaskellir
Kemur: 18. desember
Fer heim: 31. desember
Skyrgámur
Kemur: 19. desember
Fer heim: 01. janúar
Bjúgnakrækir
Kemur: 20. desember
Fer heim: 02. janúar
Gluggagægir
Kemur: 21. desember
Fer heim: 03. janúar
Gáttaþefur
Kemur: 22. desember
Fer heim: 04. janúar
Ketkrókur
Kemur: 23. desember
Fer heim: 05. janúar
Kertasnýkir
Kemur: 24. desember
Fer heim: 06. janúar
Grýla
Kemur: 24. desember
Fer heim: 24. desember
Jólakötturinn
Kemur: 24. desember
Fer heim: 24. desember
Leppalúði
Kemur: ekki til manna