Íslensku jólasveinarnir

Gluggagægir

FER AFTUR TIL SÍNS HEIMA

Gluggagægir er tíundi jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 21. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Gluggagægir lagðist á glugga til að gægjast inn. Ef hann sá þar eitthvað eigulegt reyndi hann að krækja sér í það.

Kemur til byggða

21. desember 

Fer aftur heim

3. janúar

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

Jóhannes úr Kötlum

Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum.  Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Gluggagægi.  Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.

Frá Verkstæði Jólasveinanna