Íslensku jólasveinarnir

Þvörusleikir

FER AFTUR TIL SÍNS HEIMA

Þvörusleikir er fjórði jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 15. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Þvörusleiki þótt afskaplega gott að sleikja þvörur og stalst inn í eldhús þegar færi var á til að næla sér í þær. Þvara var stöng með blaði sem notuð var til að hræra í pottum eins og sleif er notuð nú á dögum.

Kemur til byggða

15. desember 

Fer aftur heim

28. desember 

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

 

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

Jóhannes úr Kötlum

Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum.  Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Þvörusleiki.  Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.

Frá Verkstæði Jólasveinanna