Íslensku jólasveinarnir

Skyrgámur

FER AFTUR TIL SÍNS HEIMA

Skyrgámur (eldra heiti: Skyrjarmur) er áttundi jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 19. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Skyrgámi þótti skyr afskaplega gott og stalst gjarnan í skyrtunnuna og hámaði í sig þangað til hann stóð á blístri.

Kemur til byggða

19. desember 

Fer aftur heim

1. janúar

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

Jóhannes úr Kötlum

Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum.  Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Skyrjarmi/Skyrgámi.  Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.

Frá Verkstæði Jólasveinanna