Íslensku jólasveinarnir

Stúfur

FER AFTUR TIL SÍNS HEIMA

Stúfur er nafn hins þriðja jólasveins sem kemur til manna, þann 14. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Stúfur er minnsti jólasveinninn eins og nafnið bendir til. Hann nældi sér í pönnur og át agnirnar sem brunnið höfðu fastar.

Kemur til byggða

14. desember 

Fer aftur heim

27. desember 

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

Jóhannes úr Kötlum

Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum.  Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Stúfi.  Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.

Frá Verkstæði Jólasveinanna