Jólasveinarnir
Íslensku Jólasveinarnir byrja að koma eftir
Um Jólasveinana
Íslensku jólasveinarnir eru jólavættir af kyni trölla og voru upphaflega hafðir til að hræða börn til að vera þæg, dagana fyrir jól. Foreldrar þeirra, Jólasveinana, eru Grýla og Leppalúði og er Jólakötturinn gæludýrið þeirra. Í fyrstu voru ekkert í líkingu við alþjóðlega jólasveininn eins og hann birtist í dag, síðskeggjaður, klæddur rauðum fötum og gefandi krökkum gjafir. En á 20. öldinni runnu þeir smámsaman saman við hann með tímanum og í dag eru þeir ekki sömu tröllin eins og þeim er upphaflega lýst.
Hugmyndir um útlit jólasveinanna hafa verið breytilegar í gegnum aldirnar. Í fyrstu eru þeir taldir tröllum líkir. Þeim var svo lýst að þeir væru klofnir upp í háls, með klær fyrir fingur, kringlótta fætur og engar tær. Þeir voru sagðir illir að eðlisfari og líkastir púkum og lifa mest á blótsyrðum manna og óvönduðum munnsöfnuði. Þeir voru sagðir rógsamir og rángjarnir, einkum á börn. Síðar í nokkurnveginn mannsmynd en stórir, ljótir og luralegir.[1]
Smámsaman tóku þeir þó á sig nokkuð eðlilega mannsmynd og má telja líklegt að myndir Tryggva Magnússonar við jólsveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum endurspegli nokkuð hugmyndir manna um þá á þessu síðasta skeiði. Upp úr aldamótum 1900 taka þeir hinsvegar smám saman að fá æ meiri svip af fyrirmynd hins alþjóðlega jólasveins, heilögum Nikulási, bæði hvað snertir útlit, klæðaburð og innræti. Þeir verða vinir barnanna, færa þeim gjafir, syngja fyrir þau og segja sögur sem þeir hefðu aldrei gert hér áður fyrr. Mun kaupmannastéttin beint eða óbeint hafa stuðlað mjög að þessu með því að nota þá í jólaauglýsingum að erlendri fyrirmynd. Þessi þróun hófst fyrst í bæjum, en miklu síðar í sveitum.
Vörur sem tengjast Jólasveinunum
Verkstæði jólasveinanna hefur framleitt vörur með myndum af allri fjölskyldunni, 13 Jólasveinar, Grýla, Leppalúði og auðvitað Jólakötturinn.
Púsluspil
Púsluspilum með öllum Jólasveinunum
Pósterar
Pósterar (veggspjöld) með myndum af öllum Jólasveinunum.
Könnur
Könnur með myndum af öllum Jólasveinunum
Seglar
Seglar með mynd af öllum Jólasveinunum
Jólatrésskraut
Jólatrésskraut með myndum af öllum Jólasveinunum á, til í nokkrum útgáfum.
Límmiðar
Límmiðar með myndum af öllum Jólasveinunum.
FAQ
Helstu spurningar til Jólasveinana
Hvenær komið þið til byggða?
Sá fyrsti sem er Stekkjastaur, kemur fyrst og kemur hann 12. desember ár hvert og svo komum við til byggða hver á fætur öðrum. Einn á hverju degi þar til að Jólin byrja.
Er Grýla mamma ykkar?
Já Grýla er mamma okkar og Leppalúði er svo pabbi okkar.
Gefa allir Jólasveinarnir í skóinn?
Já allir gefum við í skóinn, en hvað það er, það er mismunandi og fer að mestu eftir því hversu þæg börnin hafa verið.
Hvað heitir Jólakötturinn?
Já Jólakötturinn heitir bara Jólakötturinn, við höfum ekki hugsað um neitt nafn en Jólakötturinn.
Íslensku Jólasveinarnir
Eins og allir vita þá erum við ekki bara með einn jólasvein. Við erum með 13 jólasveina sem kom til byggða, einn á dag og sá fyrsti kemur 13 dögum fyrir jól og sá síðasti kemur síðan á aðfangadag Jóla. Og svo fara þeir heim í sömu röð.
Stekkjastaur
Kemur þann 12. desember
Fer heim aftur 25. desember
Giljagaur
Kemur þann 13. desember
Fer heim aftur 26. desember
Stúfur
Kemur þann 14. desember
Fer heim aftur 27. desember
Þvörusleikir
Kemur þann 15. desember
Fer heim aftur 28. desember
Pottaskefill
Kemur þann 16. desember
Fer heim aftur 29. desember
Askasleikir
Kemur þann 17. desember
Fer heim aftur 30. desember
Hurðaskellir
Kemur þann 18. desember
Fer heim aftur 31. desember
Skyrgámur
Kemur þann 19. desember
Fer heim aftur 01. janúar
Bjúgnakrækir
Kemur þann 20. desember
Fer heim aftur 02. janúar
Gluggagægir
Kemur þann 21. desember
Fer heim aftur 03. janúar
Gáttaþefur
Kemur þann 22. desember
Fer heim aftur 04. janúar
Ketkrókur
Kemur þann 23. desember
Fer heim aftur 05. janúar
Kertasníkir
Kemur þann 24. desember
Fer heim aftur 06. janúar
Grýla
Kemur þann 24. desember
Fer heim aftur 24. desember
Leppalúði
Kemur aldrei til byggða, en er heima að halda eldi á pottunum
Jólakötturinn
Kemur þann 24. desember
Fer heim aftur 24. desember
Íslensku Jólasveinarnir
Eins og allir vita þá erum við ekki bara með einn jólasvein. Við eigum 13 jólasveina, sem koma til byggða fyrir jól. Sá fyrsti kemur 12. desember eða 13 dögum fyrir jól, síðan koma þeir einn af öðrum þe einn á dag þar til sá síðasti kemur á aðfangadag jóla. Og strax þann 25. desember þe á Jóladag fer sá fyrsti aftur til sín heima, og eins og áður þá fara þeir einn af öðrum þar til sá síðasti fer þann 6. janúar sem sé síðasta dag jóla sem kallaður er Þrettándinn.
Stekkjastaur
Kemur þann 12. desember
Fer heim aftur 25. desember
Giljagaur
Kemur þann 13. desember
Fer heim aftur 26. desember
Stúfur
Kemur þann 14. desember
Fer heim aftur 27. desember
Þvörusleikir
Kemur þann 15. desember
Fer heim aftur 28. desember
Pottaskefill
Kemur þann 16. desember
Fer heim aftur 29. desember
Hurðaskellir
Kemur þann 18. desember
Fer heim aftur 31. desember
Skyrgámur
Kemur þann 19. desember
Fer heim aftur 01. janúar
Bjúgnakrækir
Kemur þann 20. desember
Fer heim aftur 02. janúar
Gluggagægir
Kemur þann 21. desember
Fer heim aftur 03. janúar
Gáttaþefur
Kemur þann 22. desember
Fer heim aftur 04. janúar
Ketkrókur
Kemur þann 23. desember
Fer heim aftur 05. janúar
Kertasníkir
Kemur þann 24. desember
Fer heim aftur 06. janúar
Leyfðu okkur að aðstoða þig!
með bréfið til Jólasveinanna, gottið í skóinn eða eitthvað í jólapakkana.

