Íslensku jólasveinarnir
Pottaskefill
kemur til byggða eftir
Pottaskefill, einnig nefndur Pottasleikir, er fimmti jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 16. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Pottaskefill skóf og sleikti í sig skófirnar innan úr pottunum.
Kemur til byggða
16. desember
Fer aftur heim
29. desember
Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku’upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Jóhannes úr Kötlum
Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum. Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Pottaskefli. Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.