Íslensku jólasveinarnir
Stúfur
kemur til byggða eftir
Stúfur er nafn hins þriðja jólasveins sem kemur til manna, þann 14. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Stúfur er minnsti jólasveinninn eins og nafnið bendir til. Hann nældi sér í pönnur og át agnirnar sem brunnið höfðu fastar.
Kemur til byggða
14. desember
Fer aftur heim
27. desember
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Jóhannes úr Kötlum
Í tilefni þess að Verkstæði Jólasveinana hefur opnað netverslun fóru bræðurnir fram á það að hluti af vörunum sem eigi að fara í sölu hjá Verkstæðinu verði tileinkaðar þeim bræðrum. Hérna er hluti af þeim vörum sem eru tileinkaðar Stúfi. Frábærar vörur til að aðstoða jólasveinanna að setja í skóna hjá börnunum.