Íslensku jólasveinarnir
Um okkur
Jólasveinarnir & fjölskyldan
Saga okkar nær allt aftur til 17. aldar og var sagt að við værum tröllum líkir, og vorum hrekkjóttir mjög, eins og nöfn okkar bera með sér. En upp úr 1900 fórum við að haga okkur betur og stundum klæðumst við svipuðum klæðnaði og frændi okkar St. Nikulás. Við eigum það til ennþá að vera smá hrekkjóttir en það er ekki eins og það var hér áður. En við komum ennþá til jóla í sömu röð og á sama tíma og hér áður fyrr. Fyrstur kemur Stekkjastaur bróðir okkar og kemur hann þann 12. desember og síðan komum við hver á fætur öðrum. Og allir gefum við þægum börunum eitthvað gott í skóinn, en til þess verða börnin að vera þæg og góð og muna að setja skóinn út í glugga. Síðasti bróðurinn kemur síðan á aðfangadag og er það hann Kertasníkir. Síðan daginn eftir þá byrjum við að fara aftur upp í fjall til hennar móður okkar, Grýlu.
Síðan er restin af fjölskyldunni sem eru Grýla sem áður kom fram og karl faðir okkar hann Leppalúði og síðan er það kötturinn okkar, Jólakötturinn. Ef börnin eru óþæg yfir árið þá kemur Grýla og tekur þau með sér til fjalla. En Jólakötturinn hann tekur alla þá sem ekki hafa fengið nýja flík fyrir jólin.
Svo verið öll þæg og góð við hvert annað. Og passið einnig að allir fái einhverja nýja flík fyrir jólin. Við öll hérna óskum ykkur gleðilegra jóla og okkur bræðurna hlakkar til að hitta ykkur á næstu jólum.
Íslensku jólasveinarnir
& hinir í fjölskyldunni
Hér að að neðan eru jólasveinarnir í þeirri röð sem þeir koma til byggða. Til að fá meiri upplýsingar þinn uppáhalds jólasvein og kannsi að fá frá honum gott í skóinn, bréf eða jafnvel pakka um jólin.
Stekkjastaur
Kemur: 12. desember
Fer heim: 25. desember
Giljagaur
Kemur: 13. desember
Fer heim: 26. desember
Stúfur
Kemur: 14. desember
Fer heim: 27. desember
Þvörusleikir
Kemur: 15. desember
Fer heim: 28. desember
Pottaskefill
Kemur: 16. desember
Fer heim: 29. desember
Askasleikir
Kemur: 17. desember
Fer heim: 30. desember
Hurðaskellir
Kemur: 18. desember
Fer heim: 31. desember
Skyrgámur
Kemur: 19. desember
Fer heim: 01. janúar
Bjúgnakrækir
Kemur: 20. desember
Fer heim: 02. janúar
Gluggagægir
Kemur: 21. desember
Fer heim: 03. janúar
Gáttaþefur
Kemur: 22. desember
Fer heim: 04. janúar
Ketkrókur
Kemur: 23. desember
Fer heim: 05. janúar
Kertasnýkir
Kemur: 24. desember
Fer heim: 06. janúar
Grýla
Kemur: 24. desember
Fer heim: 24. desember
Jólakötturinn
Kemur: 24. desember
Fer heim: 24. desember
Leppalúði
Kemur: ekki til manna
Stjórnendur Verkstæðisins
Þessi þrjú hérna sjá til þess að hlutirnir gangi upp eins snurðulaust og hægt verður. Kertasníkir sér um allt sem snýr að framleiðslu og dreifingu. Grýlu ákveður hvað er framleitt og Stúfur sér síðan um allt sem snýr að samfélagsmiðlunum og heimasíðu.
Kertasníkir
Framleiðsla og dreifing
Grýla
Hönnun & kvartanir
Stúfur
Samfélagsmiðlar